|
Það sem Aloe Vera hefur gert fyrir mig og mína ! |
|
Kæru vinir
Ég vil bara láta ykkur vita af því að sjónvarpsþátturinn „Sjö leiðir Gauja litla“, sem var sýndur á mánudagskvöldum kl: 21.00, er hættur á ÍNN. Við höfðum gert og sent út um 40 þætti og var það mat manna að leggja þá af á nýju ári. Við vonum að þið hafið haft gaman af þessum þáttum og að þið hafið getað nýtt ykkur þann fróðleik sem þar var hafður frammi. Gaui litli og Ingvar Guðmundsson meistarakokkur eru að undirbúa þætti sem fjalla um að elda létta og holla rétti á 7 mínútum. Við látum ykkur vita þegar þeir verða tilbúnir og í hvaða formi þeir verða gefnir út. Við vonum að þið haldið áfram að nota vefinn gauilitli.is og við ætlum að vera með nýjungar sem eru í undirbúningi núna, tildæmis matreiðslubókina sem Gaui litli gaf út 1997. Hún heitir „Mataræði“ og verður hér frí á netinu, einnig kennslugögn fyrir fullorðna og börn- og unglinga ásamt fleiri nýjungum. Það má segja að það eru spennandi tímar framundan á vefnum á nýju ári.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 16 |